Löndunarþjónusta

Kuldaboli býður upp á alhliða þjónustu við frystitogara og fiskiskip. Löndun, geymsla, landamærastöð, tollvörugeymslu, flutningar og tilheyrandi þjónusta þar sem hraði, sveigjanleiki og fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.

Í Kuldabola er aðstaða fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu, í samræmi við ákvæði Schengen-samkomulagsins.

Að lokinni löndun er hægt að geyma aflann í frystivöruhóteli Kuldabola eða setja hann beint í gáma til útflutnings. Nálægð löndunar, geymslu og flutningaþjónustu tryggir gæði hráefnisins og hagkvæmni fyrir seljendur jafnt sem kaupendur.

Við bjóðum ….

  • góða aðstöðu til löndunarþjónustu í Þorlákshöfn.
  • hraða og örugga þjónustu við losun og lestun á flutningaskipum, sbr. áburð,  pallavöru ofl.
  • löndunarþjónustu alla daga vikunnar.
  • löndun beint í fullkomið frystivöruhótel Kuldabola, sem er á hafnarbakkanum eða beint í gáma til útflutnings.
  • þjónustu við Fiskmarkað Íslands hf. í Þorlákshöfn.
  • þjónustu 3 tonna diesellyftara, flutningatækis og gámalyftara.
  • vörubretti (1 * 1,2 m)